Monday, February 28, 2011

Af matseld og nýju barni

Systurnar tvær, önnur rauðhærð, 3 ára og hin dökkhærð 5 vikna, blómstra eins og fíflar að vori. Litli rauðhaus (fyrir utan að vera sannur fuglaaðdáandi) sýnir matseld mikinn áhuga. Má hún ekki heyra skrjáf í poka í eldhúsinu án að koma hlaupandi og vilja fá verkefni, minnir stóra rauðhaus ansi mikið á litlu kanínuna þeirra hann Álf sem alltaf birtist í von um bita ef hann heyrði í einhverjum inní eldhúsi. Litla rauðhaus eru að sjálfsögðu alltaf úthlutuð verkefni og tekur hún þeim eins og sannur meistarakokkur. Í dag hjálpaði hún stóra rauðhaus að útbúa kvöldverðinn og sá rauðhaus hinn minni um að steikja laukinn.


Litla koppakinn gerir fátt nema að sofa, borða og láta skipta sér og er hún óttalega sæt í því hlutverki. Hér má sjá hana á góðri stundu.

Friday, February 18, 2011

Framtíðin spennandi er

Litli rauðhaus tilkynnti það um daginn kát að hún væri búin að ákveða hvað hún ætlar að verða þegar hún verður stór. Hvorki meira né minna en fuglafræðingur og ætlar hún að rannsaka fugla með honum dr. Nielsen, afa sínum.
Loksins, loksins er von á nýjum líffræðingi í fjölskylduna og í tilefni þess var föndraður kíkir sem hún notar til að skoða fuglana úti.

Sunday, February 13, 2011

Af söfnum og gestagangi

Litli og stóri rauðhaus eru einstaklega duglegar að kíkja á söfn og já söfn í fleirtölu því það er ekki bara Dánadýrasafnið a.k.a. Dauðasafnið sem er heimsótt heldur er það líka Gautaborgarsafnið. Fóru frænkur þangað í síðustu viku þar sem þar er að finna einstaklega skemmtilegt leikherbergi þar sem litli rauðhaus fær að spreyta sig í hinum ýmsu störfum, allt frá kranakonu yfir í eldabusku.


Fjölskyldan hérna í Gautaborg var svo einstaklega heppin að fá enn einn frábæran gestinn. Að þessu sinni var það engin önnur en mín elskulega móðir. Mikið brallað meðan hún var hérna, meðal annars BÚÐAST, góðir labbitúrar, leikskólarölt með litla rauðhaus, kaffihúsahangs og síðast en ekki síst Dauðsafnið., sem eins og alltaf vakti mikla lukku.
Með sorg í hjarta var móðir svo kvödd útá lestarstöð í dag en gleðigleði fröken Berndsen kemur í heimsókn á morgun. Mikið kætir það stóra rauðhaus!

Friday, February 4, 2011

Marmelaði og lítið barn

Nýjasta viðbótin við Nielsen-fjölskylduna stækkar og dafnar. Hún er orðin alveg ótrúlega lík stóru systur sinni fyrir utan að hún virðist ætla að verða dökkhærð. Hún lifir bissí lífi; borða, sofa og fá nýja bleyju.
Nóg að gera hjá sumum...


Við mágurnar höfum aldeilis verið heimilislegar uppá síðkastið, lögðumst í svakalega marmelaðigerð, sem heitustu húsmæður hefðu grátið yfir. Stefnum jafnvel á vera með marmelaði-markað útí garði þegar fer að hlýna. Síðan var bakaður annar skammtur af rúgbrauði. Geri aðrir betur!

Wednesday, January 26, 2011

Afsakið hlé

Vegna ýmissa anna hef ég engan veginn komið því í verk að skrifa eitt né neitt. Voru helstur truflanirnar gestakomur, hátíðarhöld, boð, ferðalög, uppskriftaprófanir og síðast en ekki síst bættist við nýtt barn í hópinn.


Mikil gleði yfir þessari fögru mær! Mér veittist sú ánægja að komast í mjólkugosbrunn hjá henni í morgun sem var svo hressilegur að við þurftum báðar að skipta um allt. Já frænkur að bonda, er nokkuð fallegra?

Litli rauðhaus hefur tekið þeirri nýju afar vel, vill kyssa hana og strjúka öllum stundum og er ekki sátt með að hún megi ekki fylgja henni á leikskólann.

Margar snilldirnar hafa verið kokkaðar hérna á þessum bæ enda erum við mjög dugleg að prófa nýjar uppskriftir og stendur upp úr rúgbrauðið góða. Einfalt og tiltölulega fljótlegt (miðað við rúgbrauð) og síðast en ekki síst ó svo ljómandi gott!