Í Varberg er mikil fjölskyldustemma og lýsir það sér best í leikvöllum, bara kringum blokkina sem við erum búin að gerast hústökufólk í eru svona 30 rólóar. Mikil gleði meðal minnsta rauðhærðalingsins með það, einnig hjá rauðhærðu hinni stærri þar sem við rólóana eru líka þessir dýrindis bekkir. Rauðhærða stærri veit fátt betra en að planta rassinum á sér á notalegum bekk og glápa á tré.
Eignaðist tvennt nýtt í dag, sænskt símanúmer og risabit á hnéð. Ég er yfir mig glöð með hvort tveggja, ef þið viljið hringja í mig og fá lýsingar á kláðanum sem fylgdi ókeypis með bitinu nú eða bara senda mér klámfengin sms þá er númerið: +46-739380515
Stóri rauðhaus og mágan með augum barnsins



