Sunday, September 26, 2010

Strax farin að svíkja...


Ég er varla komin inní landið, atvinnulaus og húsnæðislaus og strax farin að svíkja Svía....Gerði þau glæsilegu mistök í miðasjálfsalakassnum í dag að kaupa mér einungis far til Malmö þegar ég klárlega var á leiðinni alla leið til Varberg. Ó hve maginn minn stundi er miðamaðurinn gekk til mín stórstígur og sagði hátt "Billetten tak". Skjálfandi en samt með mitt huggulegasta bros á vör rétti ég honum miðann minn. Mér til mikils léttis og ánægju þá krassaði hann tjékkkkk á miðann minn og strunsaði áfram. Lofum alla heilaga fyrir að hafa verndað mig fyrir 20 þús. kr. sekt og klöppum saman höndum þeim til heiðurs!

Varberg er staðurinn þar til annað kemur í ljós. Jafnvel húsnæði um miðjan okt. Hvernig væri að taka húsnæðis dansinn fyrir mig?

Næst á dagskrá: sænskt símanúmer!

2 comments:

  1. ég er að kommenta hjá sólveigu minni

    ReplyDelete
  2. Honum hefur litist svo vel á þig.. ;)

    klapp, klapp fyrir miðaverðinum og smá húsnæðisdans í leiðinni ;)...

    ReplyDelete