Rétt fyrir ofan hverfið okkar er leikskóli/sveitabær. Sveitabæjarhlutinn er opinn fyrir alla alla daga þannig við litli rauðhaus leggjum ansi oft leið okkar þangað. Nú auðvitað til að skoða lifandi dýrin. Er þetta hin mesta skemmtun fyrir okkur báðar enda miklir dýraáhugamenn. Þar höfum við tvær kýr, geitur, kindur, kanínur, naggrísi, svín og tvo hesta. Nú áðan bauð stóri rauðhaus þeim litla að koma með sér í ævintýraferð og sú litla gekk til af spenningi og sagði: “Já og sjáum hestinn kúka” Já hin fögru dýr geta aldeilis haldið okkur hressum.
Dauðasafnið vakti svo mikla lukku um daginn og virðast öll hin löngu látnu og uppstoppuðu dýr ekki hafa haft varanleg slæm áhrif á litla rauðhaus. Þannig að við skelltum okkur aftur þangað. Nú til að skoða þau betur og leika okkur í leikhorninu. Litli rauðhaus hafði enn meira gaman að þessu en í fyrra skiptið og vakti þá kengúran einkar mest lukku. Vildi litli rauðhaus meina að kengúran væri alveg eins og móðir sín, báðar með börnin í maganum. Ekki amaleg liking það!
Heimsóttum nytjamarkaði í dag og nældi stóri rauðhaus sér í einstalega fallegan ömmulampa, ó gleðin!



No comments:
Post a Comment