Sunday, December 5, 2010

Strætóbílstjórarnir sem vita allt

Litli rauðhaus hefur þvílíka ofurtrú á getu sænskra strætóbílstjóra að það er yndislegt. Dáist hún að því í nánast hvert sinn sem við komum heim með strætó og iðulega hljómar þá þessi setning: "Hann var snillingur, hann vissi alveg hvar við áttum heima."
Stóri rauðhaus sem yfirleitt pirrar sig á fruntalegri keyrslu þeirra getur ekki annað en verið sammála þeim litla. Snillingur, að finna húsið okkar svona....

Mikil gleði ríkir annars á Poetgötunni núna, pabbi Nielsen og Björg hans eru komin í hús!

No comments:

Post a Comment