Wednesday, January 26, 2011

Afsakið hlé

Vegna ýmissa anna hef ég engan veginn komið því í verk að skrifa eitt né neitt. Voru helstur truflanirnar gestakomur, hátíðarhöld, boð, ferðalög, uppskriftaprófanir og síðast en ekki síst bættist við nýtt barn í hópinn.


Mikil gleði yfir þessari fögru mær! Mér veittist sú ánægja að komast í mjólkugosbrunn hjá henni í morgun sem var svo hressilegur að við þurftum báðar að skipta um allt. Já frænkur að bonda, er nokkuð fallegra?

Litli rauðhaus hefur tekið þeirri nýju afar vel, vill kyssa hana og strjúka öllum stundum og er ekki sátt með að hún megi ekki fylgja henni á leikskólann.

Margar snilldirnar hafa verið kokkaðar hérna á þessum bæ enda erum við mjög dugleg að prófa nýjar uppskriftir og stendur upp úr rúgbrauðið góða. Einfalt og tiltölulega fljótlegt (miðað við rúgbrauð) og síðast en ekki síst ó svo ljómandi gott!

3 comments:

  1. mmmm girnó rúgbrauð! gaman að þú ert byrjuð að blogga systa mín:*

    ReplyDelete
  2. Jei loksins byrjuð aftur!!, var búin að commenta fyrr en gleymi alltaf að maður þarf að posta tvisvar. Flott brauð þú er da master of brauð baking

    ReplyDelete
  3. mmmm girnilegt barn og girnilegt brauð! Hlakka til að fá þig og bökunarhæfileika þína aftur í 101 :)
    Sakna þín systir!
    GDS

    ReplyDelete