Nýjasta viðbótin við Nielsen-fjölskylduna stækkar og dafnar. Hún er orðin alveg ótrúlega lík stóru systur sinni fyrir utan að hún virðist ætla að verða dökkhærð. Hún lifir bissí lífi; borða, sofa og fá nýja bleyju.
Nóg að gera hjá sumum...
Við mágurnar höfum aldeilis verið heimilislegar uppá síðkastið, lögðumst í svakalega marmelaðigerð, sem heitustu húsmæður hefðu grátið yfir. Stefnum jafnvel á vera með marmelaði-markað útí garði þegar fer að hlýna. Síðan var bakaður annar skammtur af rúgbrauði. Geri aðrir betur!


Barn og marmelaði! Aldeilis kraftur!
ReplyDeleteÓMG maður fer nú bara hjá sér við svona upplýsingar. En ég hlakka til að smakka :)
ReplyDeleteþetta er svona þegar maður hefur tíma:)
ReplyDeleteVá hvað þið eruð myndalegar. Marmelaði er advanced.. klístrað en advanced
ReplyDeleteÞið eruð svo duglegar:)
ReplyDeleteps.sendið mér eina svona marmelaðikrukku heim!