Wednesday, October 27, 2010

Rennibraut um sporbaug jarðar



Það vakti mikla lukku meðal allra í famelíjunni þegar við töldum okkur hafa fundið einn ótrúlegasta róló í allri Svíþjóð um daginn. Það sem við vissum ekki er að þessi róló var hannaður af NASA sem æfingarstöð fyrir geimgarpa. Mágan, litli rauðhaus og stóri rauðhaus ákváðu að drífa sig og prufukeyra þennan róló í mesta sakleysi. Töltum uppeftir spenntar og kátar. Litli rauðhaus var gíraður upp í að prófa eina svakalegustu rennibraut sem við höfðum séð á ævinni. Sallíbunan reyndist ekkert grín. Barnið fór niður á blússandir hraða og á tímabili þá var hún í lausu lofti. Mágan og stóri rauðhaus voru gapandi í losti og sáu báðar fyrir sér að barnið myndi enda stórslasað hinu megin við hraðbrautina. Jæja what goes up must come down. Barnið endaði með miklu afli beint með andlitið oní sandinum fyrir neðan rennibrautina og ó hve mikið var grátið.
Höfum við ákveðið að leyfa NASA að hafa þennan leikvöll fyrir sig enda óþarfi að slasa litla rauðhaus.
Svíar eru ekkert að grínast með leikvellina hérna...


Monday, October 25, 2010

Dauðasafnið og afmæli mágu


Við litli rauðhaus ákváðum að gerast einkar menningarlegar og skella okkur á safn. Náttúrugripasafnið í Slotskogen varð fyrir valinu. Vissi ekki mikið meira um safnið en hvar það væri staðsett. Jæja barnunginn var í vægast sagt í sjokki þarna inni til að byrja með. Ekkert nema uppstoppuð dýr sama hvert var litið og meira segja fóstur í krukkum. Hún var alveg miður sín yfir öllum dánu dýrunum og vildi vita hver hefði "dánað" þau. Eftir að hafa reynt að útskýra þetta fyrir henni allt saman og gera gott úr þessari dauðasýningu þá jafnaði hún sig nú og fór að hafa gaman að. Hljóp um allt kallandi á gömlu frænku: "Sjáðu, dáinn fíll, sjáðu þarna dáin mús, sjáðu dánir fuglar vá..." Eitt hefur hún í það minnsta tekið upp eftir þessa safnaferð og það er að taka fram hvort dýrin sem hún sér eða er að hugsa um séu lifandi eða dáin. Líkt og við gengum framhjá hundi og hún hrópaði kát: "Lifandi hundur!"
Næsta safnaferð verður klárlega ekki jafn dramatísk og vonum við hérna á Poetgatan að barnið hafi ekki hlotið varanlegan skaða.


Helgin annars var bara ljómandi, stóri og litli rauðhauslíngurnar voru svo heppnar að vera boðnar í 4 ára afmæli til Brynhildar, dóttur Gunna og Krissu. Ótrúlega hresst boð og ekki voru kökurnar neitt til að skemma fyrir. Mikið leikið, hoppað og sungið. Barnið ekkert smá ánægt með að hitta aðra krakka og hvað þá krakka sem skilja íslensku! Rúlluðum út í strætó í myrkrinu, kátar og saddar eftir góða veislu.


Í dag var síðan öðru afmæli fagnað. Mága aldeilis afmælisbarn dagsins. Byrjuðum með afmælishafragraut í morgun, síðan fórum við í afmælistúr í bæinn og fengum okkur afmælislunch. Svo var það afmælislabbitúr og loks afmælisstrætóferð heim. Í kvöld verður svo afmæliskvöldverður með stæl og afmæliskaka. Afmælisgleði!

Pís át

Wednesday, October 20, 2010

Gordjús heimabakstur

Við litli rauðhaus kitluðum trúarlegu hlið okkar og fórum í kirkjuhitting í hverfinu í morgun. Þar var fullt af börnum í góðu stuði með Guði að leika sér. Skelltum við okkur kátar í fjörið og vorum þar fram að hádegi. Eftir hádegi skelltum við okkur í bæjartúr, fórum í mollið og að sjálfsögðu í dótabúðina og rúllustigana. Klassískur Nielsen-dagur.
Heimkoma seinnipart og stóri rauðhaus skellti í unaðslega hafraklatta, svo ótrúlega einfalt og fljótlegt að meira segja ég gat gert þetta.
Hér er uppskriftin fyrir forvitna nema ég bætti við hálfu epli og slatta af súkkulaði (þá má vel minnka sykurmagnið á móti). Ótrúlega gott!

Monday, October 18, 2010

Rúllustigar og haustið

Haustið kom af öllu afli í dag, með rigningu og hressleika. Við Þórdís létum það nú ekki á okkur fá, enda sannkallaðir víkingar. Klæddum okkur upp og drifum okkur með strætó niður í bæ. Planið var smá snatterí með góðri viðkomu á uppáhalds litla rauðhauss, Fætter BR, sem er risastór og skemmtileg dótabúð. Þar lékum við okkur heillengi og fiktuðum í öllu dóti sem gaf frá sér hljóð þangað til við vorum að verða heyrnalausar. Þá ákváðum við að drífa okkur heim á leið enda klukkan að nálgast hádegismat. Áður en við fórum heim var ekki sjens að sleppa hinu uppáhalds litla rauðhauss en það er rúllustiginn. Fórum við eina sallíbunu í honum og með næsta búss heim.
Húsnæðið er að komast í heimilislegt horf, eina sem við bíðum eftir núna (og mjög mikilvægt ó já) það er sófinn, elsku sófinn og ef allt stenst þá kemur hann á morgun. Koma svo Svíar ekki bregðast okkur!

Þar sem haustið kom í dag þá fögnum við því hérna á Poetgötunni með alvöru grænmetissúpu og heimabökuðu brauði. Er það ekki unaðslegt!

Friday, October 15, 2010

Og svo kemur helgin!

Mikið búið að vera að gera hjá Svíaförum þessa vikuna. Mágur búnar að vera á fullu að mála, litli rauðhaus að hlaupa fram og til baka og bróðir í verkefni. Allir aðilar stóðu sig með prýði.
Fögnum nú að eiga fallega stofu og ekki svo bleikt bað heldur hvítt! jei!
Sófalaus erum við enn því miður og verðum það þangað til í næstu viku, sófabúðin sagði 5-7 dagar að fá sófann en það hugtak er víst ansi teygjanlegt. Höfum verið að taka tv-glápið bara japanskt, allir á koddum á gólfinu, við erum bara smart!
Mágur og barn héldu í bæjarleiðangur í dag og var hann massívur. Sjálf kom ég heim með tvo glæsilega kjóla og hálsmen, ó Gautaborg þú og allar þínar búðir leiðið mig til glötunar....

Var rangt að fitla við bleika litinn?

Monday, October 11, 2010

Poetgatan 19

Erum búin að vera á fullu að koma okkur fyrir á nýja staðnum, mikið búið að ganga á í þrifum og upppakkeríi. Svona um það bil allt að eignast sinn stað sem er æði. Erum að bíða eftir sófanum (sófaleysið er leyst þannig að við berum bara rúmið mitt inní stofu á kvöldin til að glápa á fjernsynið) og svo mála dramabláu stofuna, pjöllubleika baðið og lillaða eldhúsið. Þegar þessi verkefni eru frá ÞÁ skellum við okkur á rassinn með bjór í hönd og segjum "úhhhh jehhhh."
Við litli rauðhaus gerðumst svo myndarlegar í dag, í tilefni af því að við erum komin með eigið eldhús, að við skelltum í gómsætar bollur.


Litli rauðhaus er meira segja svo pró að hún reynir við Nielsen pósuna með sleifina, ágætis tilraun!

Saturday, October 9, 2010

elskuleg íbúð

Þá erum við aldeilis komin í nýju íbúðina og eru svona líka ljómandi glöð með þetta. Best er að það er hægt að stelast inná netið hjá einhverjum, jei!

Wednesday, October 6, 2010

Sænsk undarlegheit

Það var verið að kynna það fyrir mér að hér í Svíþjóð tíðkast það að borða kvöldmat kl. 17:00. Síðan svona milli 19:30-20:00 fá þeir sér lét kaffi fyrir háttinn og í bælið kl. 22:00 í síðasta lagi. Vinnudagurinn byrjar líka hjá flestum mun fyrr en þekkist á fróni.
Ég skal gúddera það að fara snemma í bólið enda er ég svo gömul kella...hins vegar að borða kl. 17:00, detti nú af mér allar dauðar....
Einnig (og þetta þykir mér mest sjokkerandi af öllu) er það venjan í afmælum að það sé bara ein kaka! Ein flipping kaka...Heldur eru það ekki góðir mannasiðir að fá sér oftar ein einu sinni....Nielsen says WHAT...
Fái ég 2 vini í heimsókn þá mun vera vænlegast að spyrja hversu marga bolla þeir telji þeir muni drekka af kaffi og síðan set ég 3 kexkökur á disk. Því við erum jú 3 og enginn þarf meira en eitt á mann...Flipping hell...
En eins gott ég heyrði af þessu því ef það er eitthvað sem Nielsen eru þekktir fyrir þá er það að borða, verð bara með nesti á mér (pulsu eða eitthvað annað létt) ef mér skyldi nú einhvern tímann vera boðið í sænskt afmæli eða kaffiboð.

Tuesday, October 5, 2010

Gautaborg með meiru


Jæja þá erum við búin að vera hérna í 3 daga og þetta er æði. Dagarnir hafa verið ágætlega rólegir, rölt um bæinn, snúðar borðaðir (það var nú einu sinni KANILSNÚÐADAGURINN á mánudaginn), búðir skoðaðar, sporvagnar prófaðir við mikla gleði litla rauðhauss og miklir skógartúrar í leit af íkornum.
Frændinn sem við hertókum húsið hjá býr í mjög skemmtilegu hverfi, skógur öðru megin og hraðbraut hinu megin, við höngum meira skógarmegin ótrúlegt en satt. Niður í bæ voru einungis ca 14 h&m búðir um leið og maður kom út úr sporvagninum, held þær séu jafn algengar og ljósastaurar. Það var aldeilis ekki ofsögum sagt að ég væri að flytja til h&m....Hef samt náð að hemja mig mjög svo, ég veit að þið haldið eflaust að ég sé að ljúga en þetta er dagsatt, ég er eins og myndastytta þarna inni, skoða bara með augunum eins og ég er að reyna að kenna litla rauðhaus. 
Allt klanið var saman í bænum í dag, fórum á stað sem heitir Saluhallen í hádegismat. Þessi staður er svona sem er semi matvörumarkaður með alls konar básum og síðan semi matsölustaður. Maður velur sér bás sem talinn er álitlegur og matur pantaður. Voða skemmtilegt.
Héldum síðan í skemmtilegan túr til þess að skoða tilvonandi HEIMILI okkar, því ótrúlegt en satt þá er stefnan ekki sú að vera á vergangi mikið lengur! Þetta er hin ágætasta íbúð sem þarf aðeins að lappa uppá, fáum hana seint á laugardaginn þannig helgin er tileinkuð flutningi, þrifum og málun. Hlakka mega til og ég fæ mitt eigið herbergi! Til að fagna þessu öllu þá enduðum við á kínverskum stað þar sem ég fékk mér tatatatat steikt grjón! Getur lífið verið hressilegra?
Á morgun ætlum við mága og litli rauðhaus í Ikea og fá innréttihugmyndir, jibbí! 


Friday, October 1, 2010

Eplavík og Gekas


Varberg, Varberg ú je Varberg! Þessi staður er eins og vera staddur í sænskri glæpasögu! Þeir sem hafa lesið eitthvað eftir Camilla Läckberg þekkja lýsingarnar og já ég er stödd í einni bókinni hennar. Þegar við gengum um Eplavíkina þá var ég alltaf að bíða eftir því að draugabarnið hoppaði  fram. Beið með hjartað í buxunum því sama hvað þá er ég ekki tilbúin hitta það....
Alla vega, Eplavík, jafn krúttleg og nafnið gefur til kynna. Fengum unaðs sól og hressandi vind í fangið, frábært! 
Eplavík og jafnvel draugabarnið

Hlaupahjólarauðhausinn


Ég var næstum handtekin fyrir perraskap þegar ég tók þessa mynd, hvort það hefði eitthvað flýtt fyrir sænskri kennitölu minni veit ég eigi...

Næsta mál á dagskrá er flennibúðin Gekas. Þetta er ein magnaðasta verslunarferð sem ég hef upplifað. Nú hef ég marga búðina prófað en þetta er í fyrsta sinn þar sem ég hef viljað forðað mér vegna búðarhræðslu! Þegar við mættum, 30 mín eftir opnun, þá var fólk farið að svífa að. Margir hverjir með tvær kerrur á mann. Gekas er svona búð sem selur allt, gjörsamlega allt milli himins og jarðar og á gjafaprís. Það gerir það að verkum að fólk kemur meira segja alla leið frá Þýskalandi til þess að versla þarna. Það voru 4 rútur þarna fyrir utan því það eru sérstakar rútuferðir þangað. Fólk hefur gift sig þarna, ein kellan hélt uppá 90 ára afmælið sitt þarna og það er í alvörunni til sjónvarpsþáttur um þessa búð og staffið!!! Jeminn eini!!! 
Þannig þið getið rétt ímyndað ykkur að ég var spennt að mæta á svæðið! Við alla vega víkingarnir létum okkur hafa þetta eftir nokkurra mínúta panikk í ösinni við innganginn. Þarna örkuðum við um í marga tíma og skemmtum okkur heljarinnar vel, meðal þess sem var verslað: hreingerningarefni, tuskur, föt, sokkabuxur, snyrtidót, töskur, baðvörur svo eitthvað sé nefnt. Seinna skriðum við út verslunarvímu, ég og mágan í það minnsta barnið og Óli stungu af löngu á undan. 

ó jei drífum okkur...

Eins og sönnu hústökufólki sæmir þá stoppum við aldrei lengi á sama stað, á morgun flytjum við til Gautaborgar og ætlum að taka yfir annað húsnæði í eigu ættingja mágu. Vika þar og svo fáum við okkar eigið húsnæði, þá verður partý og þér er boðið, bara mæta með moppu og pensil!