Wednesday, October 6, 2010

Sænsk undarlegheit

Það var verið að kynna það fyrir mér að hér í Svíþjóð tíðkast það að borða kvöldmat kl. 17:00. Síðan svona milli 19:30-20:00 fá þeir sér lét kaffi fyrir háttinn og í bælið kl. 22:00 í síðasta lagi. Vinnudagurinn byrjar líka hjá flestum mun fyrr en þekkist á fróni.
Ég skal gúddera það að fara snemma í bólið enda er ég svo gömul kella...hins vegar að borða kl. 17:00, detti nú af mér allar dauðar....
Einnig (og þetta þykir mér mest sjokkerandi af öllu) er það venjan í afmælum að það sé bara ein kaka! Ein flipping kaka...Heldur eru það ekki góðir mannasiðir að fá sér oftar ein einu sinni....Nielsen says WHAT...
Fái ég 2 vini í heimsókn þá mun vera vænlegast að spyrja hversu marga bolla þeir telji þeir muni drekka af kaffi og síðan set ég 3 kexkökur á disk. Því við erum jú 3 og enginn þarf meira en eitt á mann...Flipping hell...
En eins gott ég heyrði af þessu því ef það er eitthvað sem Nielsen eru þekktir fyrir þá er það að borða, verð bara með nesti á mér (pulsu eða eitthvað annað létt) ef mér skyldi nú einhvern tímann vera boðið í sænskt afmæli eða kaffiboð.

4 comments:

  1. Ég tek undir það að við Nielsen fólkið borðum mikið. Ein kaka í afmæli!!!! Ég er jafn hneyksluð og þú, isss.
    kv. L.Nielsen

    ReplyDelete
  2. Já, ég hef heyrt það sama. Svíar eru svolítið nískir... Þú verður bara að kynna þeim fyrir íslenskum hefðum!!

    ReplyDelete
  3. hahahaha snilld....
    bróðir minn borðar enn svona snemma eftir 10 ára dvöl í Sverige...
    Jeminn ein kaka það þykir mér ansi spes... til hvers þá að mæta í afmælið segi ég ef ekki til að troða sig út af MÖRGUM kökum...
    Vonandi verðuru ekki orðin svona þegar ég kem því ég heimta tvö kex ekki bara eitt - takk
    Harpa

    ReplyDelete
  4. Hehe úff... sé ekki ekki eina köku ganga upp!
    Þetta með að borða snemma var líka dáldið í Englandi, það venst ;-)
    Kv.
    María

    ReplyDelete