Erum búin að vera á fullu að koma okkur fyrir á nýja staðnum, mikið búið að ganga á í þrifum og upppakkeríi. Svona um það bil allt að eignast sinn stað sem er æði. Erum að bíða eftir sófanum (sófaleysið er leyst þannig að við berum bara rúmið mitt inní stofu á kvöldin til að glápa á fjernsynið) og svo mála dramabláu stofuna, pjöllubleika baðið og lillaða eldhúsið. Þegar þessi verkefni eru frá ÞÁ skellum við okkur á rassinn með bjór í hönd og segjum "úhhhh jehhhh."
Við litli rauðhaus gerðumst svo myndarlegar í dag, í tilefni af því að við erum komin með eigið eldhús, að við skelltum í gómsætar bollur.
Litli rauðhaus er meira segja svo pró að hún reynir við Nielsen pósuna með sleifina, ágætis tilraun!
Hahaha! Vá hvað það gladdi okkur á lyngó að sjá þessa mynd, og afinn gefur pósunni tíu í einkunn, þú getur sagt litla dýrinu það:) Við fylgumst spennt með blogginu systir!
ReplyDeletejá veistu hún stóð sig vel í Nielsen pósunni, lofar góður!
ReplyDeleteKrúttin! Hlakka til að sjá fleiri myndir!
ReplyDeleteJEI ég gat kommentað!
ReplyDeleteyndisleg mynd!!
ReplyDelete