Rauðhausarnir tveir voru að ræða saman og barst þá talið meðal annars að því að vera kona eða stelpa. Litli rauðhaus er með flest alla hluti á hreinu og meðal annars þetta...
Beinist talið að móður litla rauðhauss og jú litla var alveg með það á hreinu að mamma sín væri kona og taldi upp nokkrar vinkonur móður sinnar sem myndu líka flokkast sem konur. Beindist talið því næst að lita rauðhaus sem tilkynnti þeim stóra glöð að hún sjálf flokkaðist svo sannarlega undir stelpu. Þá var komið að því mikilvægasta...stóri rauðhaus leit djúpt í augu hins litla og spurði, uppá von og óvon, hvað hún flokkaðist sem? Litli rauðhaus var svo með svarið á hreinu og hrópaði kát: "Þú ert FRÆNKA!"
Ó gleðin, laus við konustimpilinn í bili!

Krútt!! Frænkur eru líka alveg sér flokkur og aldurslausar. Það er líka gaman að spyrja út í hluti eins og hvor er með stærri rass ég eða þessi kona. Maður fær alltaf hreinskilin svör :p
ReplyDeletehahaha ok hef ekki prufukeyrt svoleiðis
ReplyDeleteNice... klárlega betra að vera frænka en kona ;-)
ReplyDeleteehehehehe yndislegt
ReplyDelete