Monday, November 15, 2010

Liseberg í allri sinni jóladýrð


Við erum farin markvisst að vinna í því að koma okkur í jólaskapið. Nú til að tryggja að við værum á réttu róli skelltum við okkur í jólaopnun Liseberg. Meðal þess sem er á boðstólum fram að jólum eru markaðir, bæði matar og dót, jólaljós, risa ljósajólatré, jólasveinn (sem við reyndar hittum og hann er ca 15 ára með skegg..) og lítið jóladýraland. Jóladýr myndu þá vera hreindýr, geitur, hænur og að sjálfsögðu kanínur!
Þetta var hin mesta skemmtun og ég er ekki frá því að jólin hafi streymt inní litlu fjölskylduna hérna í Gautaborg. Hittum meðal annars Gunna, Krissu og Brynhildi og saman örkuðum við um garðinn og sögðum "úúúúaaaaaaa..." yfir öllu því fallega og jólalega sem við sáum. Mér tókst að smakka ótrúlega mikið af mat (nú enda þekktur hámari...) meðal annars reykt hreindýr og elg, elgpylsu (sem ég þarf ekkert að smakka aftur), djúpsteikta vöfflustrimla með kanilsykri, unaðs súkkulaði með koníaksrjóma, alls kyns marsípan og síðast en ekki síst, alvöru bratwurst!


Horfðum á flotta skautasýningu þar sem Lisebergs-kanína renndi sér um með vinum sínum. Til að toppa stemmuna þá var kveikt á stóra ljósjólatrénu með viðhöfn, 3 rakettur. Sem var aldeilis glæsilegt. Enduðum þetta stórgóða kvöld á því að borða á austurrísku veitingahúsi í Liseberg með live tónlist og det hele. Brynhildur og litli rauðhaus töpuðu sér á dansgólfinu með einkar skemmtilegum og nútímalegum danssporum. Frábær dagur með skemmtilegu fólki, lífið gerist nú ekki betra!


Aðrar skemmtilegar fréttir, stóri rauðhaus gerðist svo djarfur að fjárfesta í nýju glæsigrip í formi tölvu og hafa rauðhausarnir tveir verið mikið í því að prófa allar nýjungarnar sem hún hefur uppá að bjóða.....







2 comments:

  1. Til lukka með tölvuna systir!
    Ps. ekkert smá fínar myndir frá Liseberg, vildi að ég gæti skroppið þangað með ykkur:)

    ReplyDelete
  2. þú gerir það þegar þú kemur, við bara sköpum þá aðra jólastemmu!

    ReplyDelete