Thursday, November 25, 2010
Og síðan kom vetur
Vetur konungur hefur tekið Gautaborg í faðm sinn og kreistir full fast fyrir minn smekk enda kulvís með meiru. Geng hér um bæ í eins mörgum sokkabuxum og ég kemst upp með og ekki eru peysurnar færri en samt sem áður skelf ég eins og hrísla. Árans fjárans!
Höfum átt frekar rólega góða daga uppá síðkastið í góðra vinahópi og í smá ferðalögum. Heilmikið fjör. Matarboð hinu megin í bænum hjá Gunna, Krissu og Brynhildi. Íslenskt lambalæri eins og það gerist best og búsbúsbús! Bæjarferðir þar sem kíkt var í búðir, Dauðasafnið (að venju) og afmælisferð til Varberg.
Lentum einmitt í mjög skemmtilegri lífreynslu þar sem við biðum eftir lestinni heim frá Varberg. Biðum þar á stöðinni með nokkrum af rónum bæjarins. Einum leist svo vel á þetta tríó sem við vorum (mága, litli og stóri rauðhaus) að hann vildi endilega bjóða okkur uppá bjór. Ekki minnkaði ágangur hans er hann heyrði að við værum frá Íslandi og þá lá við að hann henti bjórnum í okkur því alvöru Íslendingar færu ekki að hafna bjór. Höfnuðu við þó, honum til mikilla vonbrigða. Finnst mér þetta sýna vel hversu vinalegir Svíar eru, meira segja rónarnir reyna að bjóða manni uppá bjór.
Enn meira fjör á næstunni enda laufabrauðsgerð að detta í gang og faðir Nielsen og kona hans ætla að koma og heimsækja Poetgötuna. Ó hve spennt bíðum við í glugganum.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)



OOO en fallegur snjór! Eina sem virkar á svona kulda er að smyrja sig með vaseline um allan líkamann áður en maður fer í föt. Þá helst kuldinn frá. Hljómar eins og góðhjartaður róni, íslenskur róni myndi seint gefa bjórinn sinn. Ætli þessi maður sé kannski einhvers staðar að blogga um íslensku rónana 3 (einn voðalega lítill) sem afþökkuðu bjór... neihhh segi svona
ReplyDeletehahahah já það væri nú skemmtilegt, hey og gott ráð, farin í vasó!
ReplyDeleteHahah þetta gladdi mig. Rónasögurnar minna mig á DK rónana okkar frá Silkeborg, þeir voru nú líka ósáttur með okkur (kannski skiljanlega..haha..)
ReplyDeleteföðurlandið og íslenska ullin. Heldur ekki óvitlaust að ganga með heitt kakó í gamaldags brúsa ;)....
ReplyDeleteótrúlega fallegt veður þarna í sverige. En sá á SV1 að kuldinn verður svakalegur hjá ykkur um helgina. Uppí norður-svíþjóð verður allt að -20!
.... en hvað svíar eru vinalegir. Er ekki að sjá það fyrir mér að íslenskir rónar myndu gefa bjórinn sinn.