Frænkur héldu í ævintýraferð í dag (samt ekki til að sjá hestinn kúka) og tókum við sporvagn númer 11 alla leið til Saltholmen. Það er svona baðstaður Gautara og einnig leiðin út í eyjurnar hérna fyrir utan Gautaborg. Voru rauðhausarnir vopnaðir nesti og báðar í nýlegum skóm. Kalt í veðri en víkingarnir létu það ekki á sig fá. Vel klæddar og til í slaginn. Klifum fjall (eða smá hól, fer eftir hæð og aldri hvernig þetta er metið) þar sem hádegisverður var snæddur með útsýni yfir víkina. Einstaklega fallegt og skemmtilegt. Ákváðum þaðan að skella okkur bara í siglingu um eyjarna, skoða hvort það væri eitthvað varið í þetta. Held ég geti alveg lofað því að þetta er eitthvað sem við skoðum aftur.
Þar sem ævintýraþránni var ekki alveg fullnægt eftir Saltholmen ferðina ákváðum við að koma við í Slotskogen á leiðinni heim. Slotskogen er stórt útivistarsvæði í Gautaborg, þar eru alls konar leikvellir, hægt að fara í heljarinnar pikknikk (næsta vor já takk), Dauðasafnið fræga er staðsett þar og hægt að kíkja í dýragarð þar sem það eru meðal annars (lifandi) mörgæsir, elgir og kindur, vúbbvúbb. Rauðhausar ákváðu að þessu sinni að fara á leikvöllinn. Stór rauðhaus er á þeirri skoðun að Svíar eru í því að ala einungis upp geimfara og áhættuleikara. Þessir rólóar eru ekkert til að gera grín að. Barnið skellti sér í 7 km langa rennibraut og kom heilt niður. Klifurtækið hins vegar fór ekki eins vel og endaði hún á því að smakka smá sand.




Voða er alltaf gaman hjá ykkur, dáswamlegt að fá myndir líka.Endilega meira svona
ReplyDeleteErtu svona eins og Sesamestreet tekur fyirr einn staf á dag :). Hljómar mjög skemmtilega vildi ég væri litla frænka þín. En ég hræðist þessar rennibrautir :o
ReplyDeletealltaf pláss fyrir fólk í ferðirnar okkar!
ReplyDelete:)
ReplyDelete