Monday, October 25, 2010

Dauðasafnið og afmæli mágu


Við litli rauðhaus ákváðum að gerast einkar menningarlegar og skella okkur á safn. Náttúrugripasafnið í Slotskogen varð fyrir valinu. Vissi ekki mikið meira um safnið en hvar það væri staðsett. Jæja barnunginn var í vægast sagt í sjokki þarna inni til að byrja með. Ekkert nema uppstoppuð dýr sama hvert var litið og meira segja fóstur í krukkum. Hún var alveg miður sín yfir öllum dánu dýrunum og vildi vita hver hefði "dánað" þau. Eftir að hafa reynt að útskýra þetta fyrir henni allt saman og gera gott úr þessari dauðasýningu þá jafnaði hún sig nú og fór að hafa gaman að. Hljóp um allt kallandi á gömlu frænku: "Sjáðu, dáinn fíll, sjáðu þarna dáin mús, sjáðu dánir fuglar vá..." Eitt hefur hún í það minnsta tekið upp eftir þessa safnaferð og það er að taka fram hvort dýrin sem hún sér eða er að hugsa um séu lifandi eða dáin. Líkt og við gengum framhjá hundi og hún hrópaði kát: "Lifandi hundur!"
Næsta safnaferð verður klárlega ekki jafn dramatísk og vonum við hérna á Poetgatan að barnið hafi ekki hlotið varanlegan skaða.


Helgin annars var bara ljómandi, stóri og litli rauðhauslíngurnar voru svo heppnar að vera boðnar í 4 ára afmæli til Brynhildar, dóttur Gunna og Krissu. Ótrúlega hresst boð og ekki voru kökurnar neitt til að skemma fyrir. Mikið leikið, hoppað og sungið. Barnið ekkert smá ánægt með að hitta aðra krakka og hvað þá krakka sem skilja íslensku! Rúlluðum út í strætó í myrkrinu, kátar og saddar eftir góða veislu.


Í dag var síðan öðru afmæli fagnað. Mága aldeilis afmælisbarn dagsins. Byrjuðum með afmælishafragraut í morgun, síðan fórum við í afmælistúr í bæinn og fengum okkur afmælislunch. Svo var það afmælislabbitúr og loks afmælisstrætóferð heim. Í kvöld verður svo afmæliskvöldverður með stæl og afmæliskaka. Afmælisgleði!

Pís át

2 comments:

  1. Hahaha.. Dauðasafn? Hvað ertu að gera litlu frænku minni? Allar slæmu minningarnar hennar um litla músí sem var ekki sofandi í holunni heldur dáinn koma aftur upp á yfirborðið..haha..

    Skemmtilegt blogg:*

    ReplyDelete
  2. Haha... þvílík afmælisgleði hjá ykkur, íslendingasvíunum... :)

    ReplyDelete