Jæja þá erum við búin að vera hérna í 3 daga og þetta er æði. Dagarnir hafa verið ágætlega rólegir, rölt um bæinn, snúðar borðaðir (það var nú einu sinni KANILSNÚÐADAGURINN á mánudaginn), búðir skoðaðar, sporvagnar prófaðir við mikla gleði litla rauðhauss og miklir skógartúrar í leit af íkornum.
Frændinn sem við hertókum húsið hjá býr í mjög skemmtilegu hverfi, skógur öðru megin og hraðbraut hinu megin, við höngum meira skógarmegin ótrúlegt en satt. Niður í bæ voru einungis ca 14 h&m búðir um leið og maður kom út úr sporvagninum, held þær séu jafn algengar og ljósastaurar. Það var aldeilis ekki ofsögum sagt að ég væri að flytja til h&m....Hef samt náð að hemja mig mjög svo, ég veit að þið haldið eflaust að ég sé að ljúga en þetta er dagsatt, ég er eins og myndastytta þarna inni, skoða bara með augunum eins og ég er að reyna að kenna litla rauðhaus.
Allt klanið var saman í bænum í dag, fórum á stað sem heitir Saluhallen í hádegismat. Þessi staður er svona sem er semi matvörumarkaður með alls konar básum og síðan semi matsölustaður. Maður velur sér bás sem talinn er álitlegur og matur pantaður. Voða skemmtilegt.
Héldum síðan í skemmtilegan túr til þess að skoða tilvonandi HEIMILI okkar, því ótrúlegt en satt þá er stefnan ekki sú að vera á vergangi mikið lengur! Þetta er hin ágætasta íbúð sem þarf aðeins að lappa uppá, fáum hana seint á laugardaginn þannig helgin er tileinkuð flutningi, þrifum og málun. Hlakka mega til og ég fæ mitt eigið herbergi! Til að fagna þessu öllu þá enduðum við á kínverskum stað þar sem ég fékk mér tatatatat steikt grjón! Getur lífið verið hressilegra?
Á morgun ætlum við mága og litli rauðhaus í Ikea og fá innréttihugmyndir, jibbí!


hæ, velja bás, váává, mig dreymdi lengi um að velja Ikea bás til að búa í, alltaf svo snyrtilegt þar og ekkert drals um allt. Spennt að sjá myndir úr og af nýju íbúðinni.Knús á alla gautaborgarana mína
ReplyDelete