Friday, October 15, 2010

Og svo kemur helgin!

Mikið búið að vera að gera hjá Svíaförum þessa vikuna. Mágur búnar að vera á fullu að mála, litli rauðhaus að hlaupa fram og til baka og bróðir í verkefni. Allir aðilar stóðu sig með prýði.
Fögnum nú að eiga fallega stofu og ekki svo bleikt bað heldur hvítt! jei!
Sófalaus erum við enn því miður og verðum það þangað til í næstu viku, sófabúðin sagði 5-7 dagar að fá sófann en það hugtak er víst ansi teygjanlegt. Höfum verið að taka tv-glápið bara japanskt, allir á koddum á gólfinu, við erum bara smart!
Mágur og barn héldu í bæjarleiðangur í dag og var hann massívur. Sjálf kom ég heim með tvo glæsilega kjóla og hálsmen, ó Gautaborg þú og allar þínar búðir leiðið mig til glötunar....

Var rangt að fitla við bleika litinn?

3 comments:

  1. sko ég er ekki hlutlaus þegar kemur að bleika litnum svo no comment;)
    en ví myndir af kjólum takk!

    ReplyDelete
  2. Þórey Arna ÁrnadóttirOctober 18, 2010 at 3:25 AM

    ÓMG hvað er gaman að heyra af ykkur - vissi ekki af þessu bloggi - hefði annars verið á refresh takkanum amk á 10 mín fresti!!!

    Ég treysti á að þú haldir mér vel upplýstri því við vitum báðar að ekki er hægt að treysta á þau heiðurs"hjón" í svona upplýsingatækni :o)

    Kærar kveðjur til ykkar allra,
    Þórey Arna

    ReplyDelete
  3. Það er bara alltaf rangt að fitla hehe. Þetta lítur út fyrir að vera systurbað baðsins í Espigerði :)

    ReplyDelete