Haustið kom af öllu afli í dag, með rigningu og hressleika. Við Þórdís létum það nú ekki á okkur fá, enda sannkallaðir víkingar. Klæddum okkur upp og drifum okkur með strætó niður í bæ. Planið var smá snatterí með góðri viðkomu á uppáhalds litla rauðhauss, Fætter BR, sem er risastór og skemmtileg dótabúð. Þar lékum við okkur heillengi og fiktuðum í öllu dóti sem gaf frá sér hljóð þangað til við vorum að verða heyrnalausar. Þá ákváðum við að drífa okkur heim á leið enda klukkan að nálgast hádegismat. Áður en við fórum heim var ekki sjens að sleppa hinu uppáhalds litla rauðhauss en það er rúllustiginn. Fórum við eina sallíbunu í honum og með næsta búss heim.
Húsnæðið er að komast í heimilislegt horf, eina sem við bíðum eftir núna (og mjög mikilvægt ó já) það er sófinn, elsku sófinn og ef allt stenst þá kemur hann á morgun. Koma svo Svíar ekki bregðast okkur!
Þar sem haustið kom í dag þá fögnum við því hérna á Poetgötunni með alvöru grænmetissúpu og heimabökuðu brauði. Er það ekki unaðslegt!
Æji dúllusnúll, ég sakna ykkar ó svo mikið. Gaman að heyra að ég og Toddí eigum það sameiginlegt að elska Fætter BR. Man þegar þú fórst með mig þangað í Silkeborg:) Eru kannski einhverjir gosbrunnar þarna hjá ykkur með styttu af litlum dreng með táslurnar ofan í?
ReplyDeleteAlltaf gleðjandi að sjá blogg frá þér elsku systir, vertu líka dúgleg að myndskreyta með.
Knús og kyss,
Litla sys
hahaha nei ekki með litlum dreng en einn gosbrunnur með nöktum kvennsum, þurfum ætíð að stoppa þar:)
ReplyDelete