Það vakti mikla lukku meðal allra í famelíjunni þegar við töldum okkur hafa fundið einn ótrúlegasta róló í allri Svíþjóð um daginn. Það sem við vissum ekki er að þessi róló var hannaður af NASA sem æfingarstöð fyrir geimgarpa. Mágan, litli rauðhaus og stóri rauðhaus ákváðu að drífa sig og prufukeyra þennan róló í mesta sakleysi. Töltum uppeftir spenntar og kátar. Litli rauðhaus var gíraður upp í að prófa eina svakalegustu rennibraut sem við höfðum séð á ævinni. Sallíbunan reyndist ekkert grín. Barnið fór niður á blússandir hraða og á tímabili þá var hún í lausu lofti. Mágan og stóri rauðhaus voru gapandi í losti og sáu báðar fyrir sér að barnið myndi enda stórslasað hinu megin við hraðbrautina. Jæja what goes up must come down. Barnið endaði með miklu afli beint með andlitið oní sandinum fyrir neðan rennibrautina og ó hve mikið var grátið.
Höfum við ákveðið að leyfa NASA að hafa þennan leikvöll fyrir sig enda óþarfi að slasa litla rauðhaus.
Svíar eru ekkert að grínast með leikvellina hérna...


obb obb er bannað að hlægja að þessari frásögn?
ReplyDeleteen spennandi rennibraut!!
ReplyDeleteJesús góður!!, væri sjálf til í að prófa þessa braut en ekki setja börn í hana ég þori aldrei að leyfa börnum að renna sér ekki einu sinni þó þær eru háflur meter og líta út eins og gulrót. Rennibrautir og rúllustigar er eitthvað sem börn eiga aldrei að koma nálægt fyrr en eftir fermingu.
ReplyDelete